Öryggi
Helstu símanúmer öryggisvarða
Hringbraut | 543 1800, 543 1805 (allan sólarhringinn) |
Fossvogur |
543 1860, 543 1850 (allan sólarhringinn) |
Landakot |
543 9800 (allan sólarhringinn) |
Grensás |
824 5326 (7:30 til 17:00 virka daga) |
Öryggisstjóri er Pálmi Þór Ævarsson palmiaev@landspitali.is, s. 543 1806
Öryggi er deild innan rekstrarsviðs Landspítala. Um 30 öryggisverðir starfa þar. Deildin annast öryggisgæslu, eftirlit og vaktþjónustu á spítalanum ásamt vöktun öryggis- og hússtjórnarkerfa. Hún sér um lyklavörslu og að opna og loka húsum.Starfsstöðvar öryggis eru við Hringbraut, í Fossvogi, á Landakoti og á Grensási. Deildin sinnir einnig þjónustu við aðra starfsstaði LSH. Í afgreiðslum öryggisvarða er upplýsingaþjónusta, tekið á móti þjónustubeiðnum ásamt öðrum verkefnum sem öryggisvörðum er falið að sjá um. Öryggisverðir sinna ýmsum flutningum í samstarfi við deild flutninga.
Á spítalanum er eftirlitsmyndavélakerfi, rafræn vöktun, sem uppfyllir kröfur Persónuverndar.
Markmið öryggis á Landspítala
- Markmið er að tryggja öryggi sjúklinga, starfsmanna og annara sem leið eiga um starfsstöðvar og lóðir Landspítala ásamt að veita áreiðanlega þjónustu þar sem lipurð og góð framkoma er aðalsmerki.
- Sjá um vöktun öryggis- og hússtjórnarkerfa Landspítala, hafa eftirlit með tækjum og búnaði spítalans.
- Annast gæslu húsnæðis LSH, bifreiðastæða, lóða og tryggja að aðkoma viðbragðsaðila sé greið að spítalanum.
- Öryggisverðir taka stjórn og gera viðeigandi ráðstafanir í neyðarástandi þar til náðst hefur í hærra setta stjórnendur.
- Öryggisverðir kunna skil á Viðbragðsáætlun Landspítala, og þekkja hlutverk sín á mismunandi viðbragðsstigum spítalans.
GÆTUM ÖRYGGIS!
|