Leit
Loka

Heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild B6

Þjónusta við sjúklinga eftir aðgerð á heila, mænu og taugum eða vegna mjaðmarbrots

Deildarstjóri

Steinunn Arna Þorsteinsdóttir

Yfirlæknar

Steen Magnús Friðriksson

Anna Björg Jónsdóttir

Heila- og taugaskurðlækningarFyrirspurn til heila- og taugaskurðldeildar

Banner mynd fyrir  Heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild B6

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga. Heimsóknartímar: Frá kl. 16.30-19.30 virka daga og 14.30-19.30 um helgar.

Heila, tauga og bæklunarskurðdeild  - mynd

Hér erum við

Fossvogur, aðalbygging 6. hæð – B álma

Hagnýtar upplýsingar

Meginviðfangsefni heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeildar:

  • Þjónusta við sjúklinga eftir aðgerð eða með áverka á heila, mænu og taugum.
  • Þjónusta við sjúklinga sem hljóta mjaðmarbrot
  • Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring.
  • Á deildinni er hágæslurými fyrir heila- og taugaskurðsjúklinga sem þurfa nánara eftirlit en á almennri legudeild.
  • Á deildinni starfa ýmsar fagstéttir sem koma að meðferð sjúklinga, auk nema í heilbrigðisgreinum. Athygli er vakin á því að starfsfólk og nemendur sjúkrahússins eru bundin þagnarskyldu um málefni sjúklinga á deildinni.
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru milli kl. 07:00-08:00, 15:00-16:00 og 23:00-23:30. Óski aðstandendur eftir samtali við starfsfólk deildar er æskilegt að það sé utan vaktaskipta. Stofugangur og teymisfundir eru fyrir hádegi alla daga.
  • Heimsóknartímar eru frá kl.16:30-19:30 virka daga og kl.14:30-19:30 um helgar. Aðstandendur eru beðnir um að virða heimsóknartímann og gildandi takmarkanir á heimsóknum á Landspítala hverju sinni. 
  • Til sjúklinga á hágæslu B6 er einungis leyfilegur einn gestur í einu.
  • Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð og bataferli.
  • Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands. Morgunverður er kl. 08:45-09:30, hádegisverður kl. 12:00-12:40, síðdegishressing kl. 14:30-15:30 og kvöldmatur kl. 17:30-18:15.
  • Á ganginum er vatnskælivél. Í dagstofu er kæliskápur fyrir sjúklinga.
  • Blóm eru ekki leyfð vegna ofnæmis
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljóðlausa hringingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma
  • Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans spítalans
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
  • Hraðbanki er í anddyri á 1. hæð, sjálfsalar á 2. hæð og við innganga á bráðamóttöku.
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl.10:00 á fjórðu hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega
 

Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.

  • Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna
  • Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift
  • Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift
  • Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á. Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er.
  • Lyf og lyfjagjafir
  • Útskrift

Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu. Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir.

Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi. Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim.

Sem sjúklingur getur þú aukið öryggi þitt og þeirrar þjónustu sem þér er veitt á spítalanum með því að vera virkur og upplýstur af meðferðarteymi þínu.

Sjá fræðsluritið: Örugg dvöl á sjúkrahúsi 

 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?