Sérnám í barna- og unglingageðlækningum
Námstími: 5 ár
Kennslustjóri: Bertrand Andre Marc Lauth með netfangið: bertrand@landspitali.is
- Sérnámssamningur
- Marklýsing
- Kynningarmyndband um sérnám í barna- og unglingageðlækningum
- Kynningarmyndband sérnámslækna í barna- og unglingageðlækningum (2023)
Barna - og unglingageðdeild Landspítalans býður upp á skipulagt sérnám í barna - og unglingageðlækningum, sem samþykkt var af mats- og hæfisnefnd í apríl 2018.
Um er að ræða fimm ára viðurkennt nám (hlutanám eða fullt nám) sem byggt er á grunni alþjóðlegra leiðbeininga UEMS (Union of European Medical Specialists) um sérnám í barna- og unglingageðlækningum. Námið tekur mið af fyrirkomulagi sérnáms í geðlækningum á geðdeild Landspítala og fyrirkomulagi sérnáms í öðrum löndum svo sem Norðurlöndum, Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum.
Kennslustjórn og kennsluráð
Bertrand Lauth kennslustjóriBjörn Hjálmarsson yfirlæknir
Dagbjört Sigurðardóttir sérfræðilæknir
Engilbert Sigurðsson yfirlæknir á geðsviði, prófessor
Guðrún B. Guðmundsdóttir sérfræðilæknir
Haukur Ö Pálmason sálfræðingur
Margrét Valdimarsdóttir sérfræðilæknir
Hrefna S. Einarsdóttir sérnámslæknir
Lengd viðurkennds náms (hlutanám eða fullt nám) 5 ár miðað við 100% vinnu
BUGL: 42 mánuðir (3,5 ár) þar af 24 mánuðir á göngudeild, 12 mánuðir á legudeild og 6 mánuðir val (gæðaverkefni/rannsóknarverkefni), vaktir
Fullorðisgeðdeild: 12 mánuðir
Barnaspítali: 6 mánuðir
Vikuleg handleiðsla í 45 60 mínútur í senn hjá sérfræðilækni á BUGL
Hálfur dagur í viku er ætlaður til fræðilegs náms
Þátttaka í seminar í barna og unglingageðlækningum á BUGL
Þátttaka í kennslu (læknanema) og fræðslu fyrir starfsmenn á BUGL
Samvinna við aðrar deildir og aðrar stofnanir
Handleiðsla í daglegu starfi á deildum
Náms og kennslugögn hafa verið keypt af BUGL
Matskerfi:
2 árleg próf og eyðublöð
Skráningarkerfi: Loggbók (sérnámsbók)
Próf:
Bandarískt stöðupróf: American College of Psychiatrists' Child Psychiatry Resident In Training
Examination (CHILD PRITE)
Klínískt próf, samkvæmt matstæki Child and Adolescent Psychiatry CLINICAL SKILLS
EVALUATION FORM (CAP CSV v.2). American Board of Psychiatry and Neurology.
Árlegt framvindumat: Mat handleiðara og mat kennslustjóra, eyðublöð
Lausar námsstöður er auglýstar sameiginlega með öðrum námsstöðum á spítalanum með samræmdu ráðningarferli í kjölfarið í september og janúar ár hvert.
- Sérnámslæknar á BUGL kynna námið
- Kynningarmyndband um sérnám í barna- og unglingageðlækningum
- Móttökumiðstöð fyrir nýja starfsmenn- spurt og svarað