Hápunktar ráðstefnunnar Dagur byltuvarna 2023
Í tilefni af alþjóðlegum degi byltuvarna 22. september 2023, stóð Landspítali ásamt samstarfsaðilum fyrir ráðstefnu með yfirskriftinni „Byltuvarnir ábyrgð okkar allra“. Ráðstefnan sem var opin öllum, var þverfagleg með áherslu á að ná fram heildrænni nálgun í byltuvörnum. Á ráðstefnunni var sagt frá ýmsum nýjungum og nýbreytni á sviði byltuvarna, kynntar voru niðurstöður rannsókna og málefni byltuvarna rædd frá ýmsum hliðum.
Ráðstefnan var haldin í samstarfi eftirfarandi stofnana og félaga: Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, Rannsóknarstofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunar- og bráðafræðum, Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, Beinverndar og Öldrunarfræðafélags Íslands.
Ráðstefnan var styrkt af REKSTRARVÖRUM, ÖRYGGISMIÐSTÖÐINNI, FASTUS, SECURITAS og STUÐLABERGI.
Myndbönd frá ráðstefnunni
- Formleg setning á degi byltuvarna: Alma Möller landlæknir
- Að halda jafnvægi: Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir, prófessor við læknadeild HÍ
- Lyf sem áhættuþáttur byltna: Alma Möller landlæknir
- Svefn á efri árum: Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Betri svefns
- Byltur og vímuefnaneysla aldraðra - Drekkandi og dettandi: Eyþór Jónsson læknir, öldrunar- og endurhæfingarsviði Landspítala
- Breyting á mati á byltuhættu í sjúkraskrá á landsvísu: Bergþóra Baldursdóttir, verkefnastjóri byltuvarna á Landspítala
- Samvinna heilsugæslu og göngudeilda fyrir aldraða: Jórlaug Heimisdóttir frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
- Ný þjónusta fyrir aldraða sem hljóta mjaðmabrot eftir byltu: Kolbrún Kristiansen, sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala
- Byltuvarnir á Landspítala og innleiðing verklags á hjartadeild: Bergþóra Baldursdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur í sjúkraþjálfun, Auður Ketilsdóttir og Kristjana Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingar á hjartadeild
- Grípum brotin: Unnur Björnsdóttir geislafræðingur, Landspítala
- Hefur mjólkurneysla áhrif á mjaðmabrotatíðni? Sigrún Sunna Skúladóttir, lektor við HÍ
- Bjartur lífsstíll - Er fjölbreytt hreyfing í boði? Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari
- Hlutverk þjálfunar í byltuvörnum: Steinunn Bára Birgisdóttir og Birgitta Þóra Birgisdóttir íþrótta- og heilsufræðingar
- Áhrif fjölþættrar heilsueflingar á jafnvægi hjá eldri aldurshópum: Hanna Bedbur íþrótta- og heilsufræðingur
- Lokaorð frá fundarstjóra: Ásta Valdimarsdóttir