Leit
Loka

Ráðstefnan „Fjölskyldan og barnið“

Frá árinu 2010 hefur ráðstefnan „Fjölskyldan og barnið“ verið haldin árlega á vegum kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Ráðstefnan er þverfagleg og er fyrir starfsfólk þjónustukjarnans og annað fagfólk. Á ráðstefnunni eru kynntar rannsóknir og verkefni sem tengjast viðfangsefnum og starfsemi kvenna- og barnaþjónustunnar. Ráðstefnan er mikilvægur liður í símenntun starfsfólks og ekki síður kjörinn vettvangur fyrir fagfólk að koma saman, deila þekkingu sinni og reynslu og gera sér glaðan dag.

Banner mynd fyrir  Ráðstefnan „Fjölskyldan og barnið“

Hagnýtar upplýsingar

Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er Áföll - í víðu samhengi og mun dagskrá fyrir hádegi taka mið af þessu efni.

Ráðstefnan „Fjölskyldan og barnið“ á vegum kvenna- og barnaþjónustu Landspítala verður haldin í Grósku, 1.nóvember 2024.

Dagskrá 

Samantekt ágripa ráðstefnunnar

Þátttökuviðurkenning fyrir ráðstefnuna

 

  • Daníel Kristinn Hilmarsson
  • Edda Sveinsdóttir
  • Helga Gottfreðsdóttir
  • Karitas Gunnarsdóttir
  • Lovísa Kristín Sigurjónsdóttir 
  • Oddný Kristinsdóttir
  • Orri Smárason
  • Tinna Baldvinsdóttir




 

Uppsetning ágripa:

  • Titill, nöfn höfunda, vinnustaðir og netfang tengiliðar.
  • Hámarksorðafjöldi 350, sett upp og send inn í Word skjali
  • Framsetning, með feitletruðum undirfyrirsögnum: Bakgrunnur, Markmið, Aðferð, Niðurstöður og Ályktanir
  • Texta skal rita í TimesNewRoman 12pt letri, 1 línubil

Ágrip skulu send með tölvupósti á: fjolskyldanogbarnid@landspitali.is

Höfundur tilgreini ósk um birtingu ágrips sem erindi eða veggspjald. Undirbúningsnefnd áskilur sér rétt til ritrýningar og ákvörðunar um birtingu ágrips og form þess, þ.e. sem veggspjald eða erindi.

Dæmi um hvernig senda á inn ágrip:

ATH! smellið á myndina til að sjá hana stærri

Nánari upplýsingar:

fjolskyldanogbarnid@landspitali.is og helgagot@hi.is

2022

2019 

2018 Fjölskyldan í gleði og sorg

2016 Fjölskyldan og barnið – saman getum við meira

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?