Leit
LokaFagráð iðjuþjálfa
Fagráð iðjuþjálfa á Landspítala var stofnað í apríl 2010. Í því sitja hverju sinni 6 iðjuþjálfar frá stærstu starfseiningunum iðjuþjálfunar.
Markmið fagráðsins er að
- stuðla að þróun og framförum í starfsemi iðjuþjálfa varðandi þjónustu við sjúklinga, menntun nemenda, endurmenntun starfsfólks og vísindarannsóknir
- rannsóknir verði samþættar starfi iðjuþjálfa og áhersla verði lögð á klínískar rannsóknir sem skili sér í bættri meðferð sjúklinga spítalans
- vera ráðgefandi vettvangur um fagleg málefni fyrir iðjuþjálfa Landspítala og stjórnendur sé eftir því leitað
- taka þátt í að móta stefnu Iðjuþjálfunar Landspítala og starfsþróun iðjuþjálfa í samvinnu við yfiriðjuþjálfa.
Leiðir að markmiðum
- Gera starfsáætlun árlega
- Halda málþing árlega þar sem iðjuþjálfar kynna efni um gagnreynda iðjuþjálfun
- Halda utan um skráningu vísinda- og útgáfustarf iðjuþjálfa
- Hvetja til kynningar innan Landspítala á iðjuþjálfun á alþjóðadegi iðjuþjálfa
- Halda utan um fræðslu sem iðjujálfar sækja sér
- Halda utan um fræðslu sem iðjuþjálfar halda fyrir aðra