Leit
Loka

Smitsjúkdómar og almenn lyflækningadeild

Greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með sýkingar og smitsjúkdóma. Almenn lyflæknisfræðileg vandamál

Deildarstjóri

Stefanía Arnardóttir

stefarn@landspitali.is
Yfirlæknir

Már Kristjánsson

markrist@landspitali.is

Banner mynd fyrir  Smitsjúkdómar og almenn lyflækningadeild

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn allan ársins hring

Smitsjúkdómar og almenn lyflækningadeild - mynd

Hér erum við

Fossvogur, A álma, 7. hæð. Göngudeild smitsjúkdóma er á 3. hæð í A-álmu.

Hagnýtar upplýsingar

Meginviðfangsefni

  • Almenn lyflæknisfræðileg vandamál
  • Greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með sýkingar og smitsjúkdóma

Flestir sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, bráðalyflækningadeild eða gjörgæsludeild.  Auk þess er tekið á móti sjúklingum með öll almenn lyflæknisfræðileg vandamál.

Á deildinni eru sérútbúnar einangrunarstofur ætlaðar sjúklingum sem þurfa einangrun vegna smitsjúkdóma eða skerts ónæmiskerfis.

Legudeild með 22 rúmum, þar af 5 sérútbúnum einbýlum.
Starfsmenn um 50 talsins.
Meðallegutími er 11 dagar.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.

  • Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring
  • Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga
  • Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00
  • Stofugangur er kl. 09:00-11:00
  • Heimsóknartímar eru eftir samkomulagi en yfirleitt ekki fyrir hádegi eða eftir kl. 20:00

Þverfagleg vinna

  • Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands
  • Morgunverður um kl. 8:30
  • Hádegisverður um kl. 12:00
  • Miðdegiskaffi um kl. 14:30
  • Kvöldmatur kl. 17:30
  • Kvöldkaffi um kl. 19:30
  • Á ganginum er vatnskælivél og kæliskápur fyrir sjúklinga
  • Blóm eru ekki leyfð vegna ofnæmis
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljóðlausa stillingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma
  • Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans.
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3
  • Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslun í anddyrum Landspítala
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
  • Hraðbanki er í anddyri og sjálfsalar eru á nokkrum stöðum í húsinu
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl. 10:00 á Landspítala Fossvogi, stigapalli á 4. hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega
Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn. Við útskrift á sjúklingur rétt á að fá:
  • Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna.
  • Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift.
  • Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift.
  • Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á. Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er.

Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.

Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna. Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.

Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis.

Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýringa.

Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu.

Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir.

Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi.

Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim.

Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?