Leit
LokaTalþjálfun og talmeinaþjónusta
Í talþjálfun er unnið að bættri samskiptagetu t.d. vegna erfiðleika í máli, tali og rödd. Einnig falla kyngingarerfiðleikar undir starfssvið talmeinafræðinga.
Um talþjálfun
Veitt er þjónusta á Grensási og jafnframt á öllum deildum Landspítala, sé eftir því leitað.
- Talþjálfun er opin alla virka daga kl. 8:00-16:00
- Sími: 543 9251
- Yfirtalmeinafræðingur er Ester Sighvatsdóttir, sími: 543 9323
- Meta málgetu, tal og rödd með sérhæfðum prófum
- Meta kyngingargetu með sérhæfðum rannsóknum
- Aðstoða sjúklinga með mál- og talmein við að ná sem bestri færni til tjáskipta
- Leita samvinnu við aðstandendur sjúklings með skerta málfærni, veita ráðgjöf um samskiptaleiðir
- Hópmeðferð vegna þvogls (þvoglhópur)
- Hópmeðferð vegna málstols (spilahópur)
- Meðferð og ráðgjöf vegna kyngingarerfiðleika
- Meta málþroska barna og unglinga og veita þjálfun og ráðgjöf
- Greina kyngingarerfiðleika barna og veita ráðgjöf vegna erfiðleika barna við að borða og drekka
Veitt er þjónusta á Grensási og jafnframt á öllum öðrum deildum Landspítala, sé eftir því leitað.