Leit
Loka

Hagnýtar upplýsingar

Góð samvinna milli þín, foreldra þinna og okkar skiptir miklu máli. Þegar þú kemur í fyrsta viðtal eiga foreldrar þínir alltaf að koma með, helst báðir en allavega það foreldri sem þú býrð hjá.

Það er til þess að við fáum að kynnast ykkur og heyra í öllum með hver vandinn er og hvernig hægt er að aðstoða ykkur.

Yfirleitt tekur fyrsta viðtal um eina til eina og hálfa klukkustund og þið hittið alltaf málastjórann sem mun verða ykkar helsti tengiliður á BUGL og verður sá sem þið hringið í ef ykkur vantar upplýsingar eða þurfið að ræða eitthvað sem varðar meðferðina á BUGL.

Við byrjum yfirleitt fyrsta viðtalið á að allir setjast niður saman og spjalla í stutta stund. Svo þegar allir eru búnir að kynnast er vaninn að barnið/unglingurinn sitji eftir með málastjóranum og spjalli við hann í einrúmi. 

Svo fer barnið/unglingurinn fram og bíður í smá stund á meðan foreldrar koma í viðtal við málastjórann. Þá er yfirleitt verið að fara yfir upplýsingar varðandi t.d. meðgöngu, fæðingu, hvenær þú fórst að ganga, tala, borða og ýmislegt í þeim dúr. 

Viðtalinu lýkur með því að allir hittast aftur saman og farið er yfir næstu skref áður en farið er heim.

Eftir viðtalið fer málastjórinn yfir þau gögn sem hafa komið með tilvísuninni á BUGL, til dæmis sálfræðiskýrslur og lista sem foreldrar og skóli hafa fyllt út ásamt listum sem þú hefur fyllt út í viðtalinu við málastjórann. Svo eru næstu skref ákveðin. 

Oft er gefinn tími hjá lækni teymisins sem þú tilheyrir eða þú færð tíma í einstaklingsviðtöl, eftir því hvað hentar þér. 

Viðtölin taka yfirleitt klukkustund.

 Á BUGL eru einnig í boði margar og mismunandi hópmeðferðir eftir því með hvaða vanda er verið að vinna. 

Oftast er svo haldinn upplýsingafundur með foreldrum þínum og starfsfólki skólans sem hefur verið að styðja þig, svo fram komi hvað þeim finnst vera að og einnig til að fá samvinnu um hvað væri hægt að gera öðruvísi. 

Hversu mikið við gerum á BUGL fer eftir eðli vandans sem þú ert að glíma við. S

tundum er þörf á að leggja börn/unglinga inn á legudeild en vanalega ekki í fyrsta viðtali.

Þegar þér fer að líða og ganga betur þá metum við málið aftur og ákveðum útskrift af BUGL. 

Tímalengdin í þjónustunni hjá okkur á BUGL er mjög misjöfn, allt frá nokkrum
vikum eða mánuðum upp í nokkur ár. Í sumum tilvikum höldum við samvinnunni til 18 ára aldurs og styðum viðkomandi í viðeigandi heilbrigðis- og eða félagsþjónustu annars staðar.

Ef þú hefur einhverjar spurningar, endilega skrifaðu þær niður eða reyndu að muna þær og spyrja svo þegar þú kemur í fyrsta viðtalið til okkar.

Vonandi mun okkur ganga vel að vinna saman. 

Við sjáumst þegar þú kemur í fyrsta viðtalið.

ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI, BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD - BUGL, MAÍ 2017
UMSJÓN: HUGRÚN HRÖNN KRISTJÁNSDÓTTIR, VERKEFNASTJÓRI
ÁBYRGÐ: UNNUR HEBA STEINGRÍMSDÓTTIR, ÞJÓNUSTUSTJÓRI
LJÓSMYNDIR: SHUTTERSTOCK
HÖNNUN: KYNNINGARMÁL LSH
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?