Hugræn atferlismeðferð við kvíða og þunglyndi
Meðferðin heitir hugræn atferlismeðferð og er sálfræðileg meðferð sem hefur verið í örum vexti og útbreiðslu síðasta aldarfjórðunginn og byggist á fjölda árangursrannsókna.
Hugræn atferlismeðferð byggist á því grundvallaratriði að hugsun okkar hefur mikil áhrif hvernig okkur líður og hvernig við hegðum okkur.
Hagnýtar upplýsingar
Meðferðin fer fram í hópi og byggist á fræðslu og heimaverkefnum, þar sem kenndar eru aðferðir til að takast á við kvíða og þunglyndistilfinningar.
Í hverjum hópi eru 15-25 þátttakendur en tveir sálfræðingar veita meðferðina.
Meðferðin fer fram einu sinni í viku, tvær stundir í senn, í fimm vikur.
Áður en meðferðin hefst fær hver þátttakandi einstaklingsviðtal hjá sálfræðingi, þar sem vandi hans er metinn
Ekki er óalgengt að slíkur vandi komi upp hjá fólki þegar það stendur á tímamótum í lífinu, s.s. við veikindi, skilnað, ástvinamissi og jafnvel við fæðingu barns.
Þá þjást sumir af kvíða og þunglyndi án þess að gera sér grein fyrir því hvers vegna.
Algeng einkenni þunglyndis eru:
Orkuleysi, vanmáttarkennd, einbeitingarerfiðleikar, óákveðni, svefntruflanir, framtaksleysi og breyting á matarlyst.
Algeng einkenni kvíða eru:
Vanmáttur, óöryggi, meltingartruflanir, ör hjartsláttur, sviti, spennuverkir, höfuðverkir, svimi, óróleiki, svefntruflanir.
Einnig er lögð áhersla á að þátttakendur fræðist um hvernig slík vanlíðan verður til.
Heilsugæslulæknir þinn mun í framhaldi af því fá í hendur upplýsingar um meðferð þína og getur því ráðlagt þér um framhaldsmeðferð ef þörf er á.
Þátttakendur eru hvattir til að nýta sér þennan möguleika, bæði til þess að fá meiri aðstoð ef ekki hefur gengið nógu vel og einnig til þess styrkja árangur sinn þannig að hann vari lengur.
Nánari upplýsingar um meðferðina og tímasetningar færðu hjá heimilislækni þínum og öðru starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar.
Sálfræðingar á geðsviði Landspítalaháskólasjúkrahúss sjá um meðferðina og eru þeir bundnir samskonar trúnaði við þátttakendur og starfsfólk heilsugæslunnar.
Á geðsviði LSH hefur þessi meðferð verið í þróun undanfarin ár og rannsókn bendir til þess að hún skili þátttakendum góðum árangri.
HUGRÆN ATFERLISMEÐFERÐ VIÐ KVÍÐA OG ÞUNGLYNDI ER SAMSTARFSVERKEFNI:
- GEÐSVIÐS LSH
- HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTISINS
- HEILSUGÆSLUNAR Í REYKJAVÍK
- HEILSUGÆSLUNAR LÁMÚLA
- HEILSUGÆSLUNAR Á EGILSSTÖÐUM
- HEILSUGÆSLUNAR Á ÍSAFIRÐI
ÚTGEFANDI:
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
GEÐSVIÐ Í DESEMBER 2005
ÁBYRGÐARMAÐUR TEXTA:
HAFRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR SÁLFRÆÐINGUR