Leit
Loka

Hagnýtar upplýsingar

Offita barna orsakast af mismunandi þáttum.

Erfðir hafa mikil áhrif og einnig hafa ýmsir umhverfisþættir áhrif á matarvenjur og hreyfingu barna.

Greining felst í að mæla:

  • Hæð og þyngd
  • Mittisummál 
  • Ummál upphandleggs hjá barninu

Ásamt líkamsskoðun og heilsufarssögu. Skólaheilsugæsla sér meðal annars um reglubundnar mælingar á hæð og þyngd skólabarna.

Foreldrar eru látnir vita ef niðurstöður úr þessum mælingum gefa til kynna að barn sé með offitu.

Því miður er ekki til nein skyndilausn við þessum heilsufarsvanda.

Meðferðin tekur tíma, hún byggist á góðri samvinnu fjölskyldunnar, barnsins og heilbrigðisstarfsfólks.

Meðferð Heilsuskólans er byggð á gagnreyndum aðferðum og felur í sér fræðslu, ráðgjöf og hvatningu til foreldra og barns.

Í Heilskólanum er meðal annars boðið upp á hópmeðferð fyrir börn á aldrinum 8-12 ára.

Mikilvægt er að tryggja nægilega hreyfingu hjá barninu, skjátími hámark tvær klst. á dag.

  • Leggja áherslu á neyslu ávaxta og grænmetis
  • Engir sykraðir drykkir
  • Ef þyngdaraukning verður mikil á stuttum tíma
  • Ef þyngdaraukning verður mikil á stuttum tíma
  • Fjölskyldan þarf á frekari stuðningi að halda
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?