ÞRÝSTINGSSÁRAVARNIR
Þrýstingssár eru áverkar á húð og undirliggjandi vef sem myndast vegna staðbundins þrýstings eða álags. Þrýstingssár eru líka nefnd legusár því að þau myndast oftast hjá fólki sem á erfitt með að hreyfa sig og situr eða liggur mikið í sömu stellingu. Því lengur sem þrýstingur varir því meiri hætta er á að alvarlegt sár myndist. Þrýstingssár eru fljót að myndast en lengi að gróa. Fyrstu einkenni geta verið eymsli en fyrsta sjáanlega merkið er roðablettur á húð. Þau geta verið sársaukafull, lengt sjúkrahúsdvöl og dregið úr lífsgæðum. Góðu fréttirnar eru þær að hægt er að koma í veg fyrir flest þeirra.
- Geta til hreyfingar er lítil t.d. vegna lömunar, langvarandi veikinda eða skurðaðgerða.
- Löngum tíma er varið í rúmi, í stól eða í hjólastól án þess að hagræða sér.
- Fólk skynjar ekki sársauka eða óþægindi og skiptir því ekki um stellingu eins og þarf.
- Notuð eru sterk verkjalyf eða slævandi lyf .
- Raki liggur við húð vegna svita, þvags eða hægða.
- Of lítið er borðað miðað við þarfir eða fæði er einhæft.
- Fólk er grannholda eða í yfirþyngd.
- Húð er viðkvæm, til dæmis hjá öldruðum.
- Þegar einstaklingur er í hættu á að fá þrýstingssár er nauðsynlegt að bregðast við því strax. Það eru einkum fimm atriði sem leggja þarf áherslu á til að koma í veg fyrir þrýstingssár.
HAMUR er skammstöfun fyrir þessa fimm atriði:
- H - Hreyfa
- A - Athuga húð
- M - Matur, vökvi og næring
- U - Undirlag
- R - Raki
HAMUR
Hreyfing er mikilvæg til að forðast viðvarandi þrýsting á húð og undirliggjandi vefi. Fólk sem ekki hreyfir sig nóg þarf að fá aðstoð við það.
Eftirfarandi er ráðlagt:
- Fara reglulega fram úr rúmi, sitja til borðs við máltíðir og standa reglulega upp úr stól.
- Hagræða sér reglulega þegar setið er í stól til að breyta þrýstingi, helst ekki sjaldnar en á 15 mínútna fresti.
- Skipta reglulega um stellingu í rúmi, ekki sjaldnar en á tveggja klukkustunda fresti yfir daginn. Snúningslök og rúmgrindur geta auðveldað hreyfingu. Sniðugt getur verið að láta símann minna sig á að breyta um stellingu.
- Hafa höfðalag helst ekki mikið hækkað nema stuttan tíma í einu því það reynir mikið á húð yfir spjaldhrygg. Sumir sjúklingar þurfa þó að hafa hátt undir höfði vegna sjúkdómsástands.
- Heilbrigðisfagfólk veitir ráðgjöf um hreyfingu, legustellingar, setu í stól, notkun stuðningspúða og annarra hjálpartækja, í samræmi við þarfir hvers og eins.
Ráðlagt er að skoða og meta ástand húðar sem er í hættu a.m.k. tvisvar á sólarhring til að athuga hvort eftirfarandi sé til staðar:
- Roði eða blámi sjáist.
- Húð sé glansandi, bólgin, heit eða köld.
- Sár, blöðrur eða fleiður sjáist.
Mynd: Rauðu doppurnar sýna húðsvæði þar sem hætta er á að þrýstingssár myndist, t.d. á hælum, olnbogum, setbeinum, spjaldhrygg og rófubeini.
Látið heilbrigðisfagfólk vita ef grunur vaknar um að þrýstingssár sé að myndast.
- Ráðlagt er að borða fjölbreytt fæði sem er ríkt af orku og próteini. Prótein er mikilvægt næringarefni til að viðhalda vöðvum og til að sár grói. Prótein er meðal annars í fiski, kjöti, eggjum, mjólkurvörum og baunum.
- Ráðlagt er að drekka næringardrykki ef illa gengur að nærast með hefðbundum mat.
- Hægt er að kaupa næringardrykki í apótekum. Læknir eða næringarfræðingur getur sótt um niðurgreiðslu fyrir næringardrykkjum hjá Sjúkratryggingum Íslands að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
- Vökvaþörf einstaklinga er breytileg en ágætt viðmið er 1600 ml (um 8 glös) á dag fyrir konur og 2000 ml (um 10 glös) á dag fyrir karla.
- Þörf er á meiri vökva við sótthita, uppköst, niðurgang eða aukinn svita.
Dýnur, sessur og annað undirlag er mikilvægur þáttur í því að koma í veg fyrir þrýstingssár.
- Rúmdýna þarf að vera þægileg og hafa þann eiginleika að dreifa þrýstingi. Mikilvægt er að láta starfsfólk vita ef dýna er óþægileg.
- Sérhannaðar loftdýnur og sérstakar stólsessur hjálpa til við að dreifa þrýstingi og draga úr hættu á þrýstingssárum.
- Koddar og sérstakar hælahlífar koma að gagni við að fyrirbyggja þrýstingssár á hælum með því að lyfta hælum frá dýnu.
- Lök þurfa að vera slétt því krumpur í þeim geta valdið óþarfa þrýstingi á húð.
- Forðast ætti þröngar teygjur, þykka sauma og krumpur í fatnaði sem geta valdið þrýstingi á húð.
- Halda þarf húð hreinni og forðast að raki s.s. þvag, hægðir eða sviti liggi við húð því raki veikir húð og eykur hættu á þrýstingssárum.
- Mikilvægt er að skipta um rakan fatnað, rúmfatnað eða bleiu.
- Mælt er með að hreinsa húð með mildri sápu, hreinsikremi eða hreinsifroðu og nota rakakrem eða húðverndandi áburði eftir þörfum.
- Mælt er með reglulegum salernisferðum hjá sjúklingum með þvagleka.
Útskrift af sjúkrahúsi
- Ávallt er ráðlagt er að fylgja HAMUR leiðbeiningunum ef hætta er á að fá þrýstingssár, jafnt á sjúkrastofnunum og í heimahúsum.
- Ef spurningar eða áhyggjur vakna varðandi þrýstingssár og varnir gegn þeim er best að leita svara hjá heilbrigðisfagfólki.