Mikilvægum áfanga var náð hjá Blóðbankanum í byrjun árs 2007 þegar fjöldi þeirra sem hefur gefið blóð 100 sinnum eða oftar var orðinn 50.
Sigurður Eggert Ingason er yngstur í hópi þeirra sem hafa gefið blóð oftar en 100 sinnum. Hann hóf að gefa blóð 17 ára og hefur gert það reglulega í 28 ár. Þegar hann kom í 100. skiptið voru með í för bróðir hans, sem var að gefa í 50. skiptið, og sonur hans sem var að gefa blóð í fyrsta skipti.
Sigurður segir að það hafi verið umfjöllun um Blóðbankann í sjónvarpi sem hreyfði við honum þegar hann var 17 ára. "Þessi umfjöllun hafði þau áhrif á mig að ég hef upp frá því gefið blóð á þriggja mánaða fresti undanfarin 28 ár. Vinnuveitendur mínir í gegnum tíðina hafa sýnt mér skilning þegar ég þarf að fara í Blóðbankann enda er um þjóðþrifamál að ræða. Þá er mikill kostur við Blóðbankann að ekki þarf að panta tíma til þess að gefa blóð, maður mætir bara og leggst á bekkinn," segir Sigurður. Hann kveðst staðráðinn í því að gefa blóð áfram eða þangað til heilsan fer að gefa sig.
Milli 9-10 þúsund einstaklingar gefa blóð í Blóðbankanum á hverju ári. Blóðbankinn þarf um 16.000 blóðgjafir á ári til að mæta þörfum samfélagsins.
Vodafone hefur stutt Blóðbankann í kynningar-, útgáfu- og fræðslustarfi undanfarin þrjú ár. Markmið samstarfsins er að auka sýnileika Blóðbankans meðal fólks og gera honum mögulegt að afla nýrra blóðgjafa.
Með Sigurði kom bróðir hans Hjálmtýr sem gaf í 50. skipti og sonur hans Róbert Dan sem gerðist blóðgjafi þennan dag.
Mynd efst: Sigurður ásamt starfsfólki Blóðbankans.