*Starfsfólkið á bráðamóttökunni á Landspítala Hringbraut gerði sér dagamun á kaffistofunni þar í hádeginu miðvikudaginn 28. febrúar 2007 og hafði að sönnu tilefni til, reyndar fleiri en eitt. Það helsta var að tveir starfsmennirnir voru að láta af störfum þar, Sigurður Benediktsson aðstoðarlæknir og Ólöf Viktorsdóttir deildarlæknir. Þetta var síðasti vinnudagurinn þeirra og þess vegna buðu þau í kaffi. Hann er að fara í heilsugæsluna, hún á lungnadeild. En þetta var líka afmælisdagur beggja!! Og ekki nóg með því þriðji starfsmaðurinn átti líka afmæli, Hjörtur Oddsson hjartalæknir á lyflækningasviði I en hann er hins vegar ekki á förum.
Mynd: Afmælisbörn dagsins, læknarnir Sigurður Benediktsson, Ólöf Viktorsdóttir
og Hjörtur Oddsson.