Barnaspítali Hringsins fékk árið 2006 að gjöf alls 300 milljónir króna til styrktar reksturs hágæslueiningar fyrir inniliggjandi börn. Gefendur voru Jóhannes Jónsson kaupmaður og börn hans, þau Kristín Jóhannesdóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson. Þá voru afhentar 30 milljónir króna af gjafafénu til verkefnisins og ákveðið að eftirstöðvar yrðu greiddar út fjórum sinnum á ári, 15 milljónir króna hverju sinni, þ.e. 60 milljónir árlega í alls 5 ár. Jóhannes og Kristín komu á barnaspítalann í dag og afhentu formleg næstu styrkveitingu, þ.e. 15 milljóna króna..
Gjafaféð hefur verið notað til kaupa á tækjabúnaði og þjálfunar starfsfólks til starfa við hágæslueininguna og þannig unnið að uppbyggingu og skipulagi slíkrar einingar á spítalanum. Því starfi verður haldið áfram.
Hágæslueining barnaspítalans er staðsett á barnadeild 22E. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar deildarinnar hafa fengið fræðslu og þjálfun varðandi hjúkrunarmeðferð barna sem þarfnast hágæslu. Þessi þjónusta er viðbót í starfsemi Barnaspítala Hringsins og eykur enn frekar öryggi veikustu barnanna.
Vaktafyrirkomulagi lækna hefur verið breytt til reynslu til þess að auka viðveru sérfræðinga í húsinu á bundnum vöktum, með það fyrir augum að stuðla að bættu öryggi inniliggjandi sjúklinga hverju sinni.
Greinileg þörf er fyrir þessa þjónustu á Barnaspítala Hringsins en undanfarna mánuði hafa 10 börn verið vistuð á hágæslu nokkra daga í senn.