Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur skipað þrjár nýjar nefndir sem tengjast starfsemi Landspítala, samkvæmt tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins á vef þess:
Ráðgjafarnefnd um Landspítala
Níu manna ráðgjafarnefnd Landspítala er skipuð samkvæmt 20 grein laga um heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi 1. september 2007. „Í nefndinni situr fólk frá mörgum sviðum samfélagsins, sem endurspeglar meðal annars sjónarmið neytenda, atvinnulífs og háskólasamfélags. Tilgangurinn er að efla tengsl Landspítala við þjóðfélagið og möguleika notenda þjónustunnar til að hafa áhrif á starfsemi og þjónustu spítalans.
Nefndinni er samkvæmt lögunum ætlað að vera forstjóra spítalans og framkvæmdastjórn hans til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans.
Ráðgjafarhlutverk nefndarinnar snýr fyrst og fremst að stjórnendum Landspítala og er verksvið hennar afmarkað í samræmi við það.
“
Ingibjörg Pálmadóttir, formaður, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
Anna Þrúður Þorkelsdóttir fyrrverandi forstöðumaður
Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri
Guðjón Sigurðsson formaður MND félagsins
Óskar Örn Guðbrandsson framkvæmdastjóri Félags krabbameinssjúkra barna
Valgerður Gunnarsdóttir forstöðumaður heilbrigðisupplýsinga, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur, Landspítala
Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar
Sigurrós Kristinsdóttir 1. varaformaður Eflingar
Nefnd um málefni Landspítala
Sjö manna nefnd verður heilbrigðisráðherra til ráðgjafar um framtíðarstefnumótun spítalans auk þess að efla og styrkja eftirlit ráðherra með rekstri og þjónustu spítalans. Sambærileg nefnd verður skipuð um málefni Sjúkrahússins á Akureyri.
„Meðal þess sem nefndinni er ætlað er að skilgreina hlutverk Landspítala og gera tillögur um hvernig greina megi að kjarnastarfsemi hans og önnur verkefni, framkvæma athugun á stjórnskipulagi Landspítala og gera úttekt á rekstri hans.“
Vilhjálmur Egilsson, formaður, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins
Guðjón Magnússon framkvæmdastjóri hjá WHO
Hanna Katrín Friðriksson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Inga Dóra Sigfúsdóttir deildarforseti kennslufræði og lýðheilsudeildar HR
Linda Bentsdóttir lögfræðingur hjá Invest
Margrét S. Björnsdóttir forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála hjá HÍ
Nefnd um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana
Sjö manna nefnd er ætlað að sinna því hlutverki að efla og styrkja eftirlit með uppbyggingu fasteigna heilbrigðisstofnana og aðstöðu þeirra og rekstri fasteigna Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.
„Nefndin skal vinna tillögur að framtíðarskipulagi fasteigna og annarrar aðstöðu innan heilbrigðiskerfisins í kjölfar þarfagreiningar og leggja fyrir ráðherra eins fljótt og unnt er.
Nefndin mun hafa yfirumsjón með undirbúningi, hönnun og byggingu nýrrar sjúkrahúsbyggingar fyrir Landspítala og skal í því sambandi leitast við að tryggja góða samvinnu m.a. við samtök sjúklinga og aðstandenda og Háskóla Íslands. Nefndin skal þegar í stað gera úttekt á núverandi stöðu verkefnisins og vinna áætlun um áfangaskiptingu og fjármögnun framkvæmda.“
Inga Jóna Þórðardóttir, formaður
Árni Þór Sigurðsson alþingismaður
Bolli Héðinsson hagfræðingur
Bolli Kristinsson fjárfestir
Hanna Katrín Friðriksson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Margrét Sanders framkvæmdastjóri Deloitte á Íslandi
Þórir Kjartansson framkvæmdastjóri