Allur ágóði af árlegri jólakortasölu Hringsins rennur til styrktar veikum börnum á Íslandi.
Kortin eru seld í 5 og 10 stk. pökkum með hvítum umslögum. Minni pakkinn kostar 500 krónur, sá stærri 1000 krónur.
Sölustaðir eru: Lyf og heilsa, Barnaspítali Hringsins, Blóðbankinn, Melabúðin, Hjá Hrafnhildi og fleiri staðir. Einnig er hægt að senda pöntun í tölvupósti á póstfangið: hringurinn@simnet.is. Þá má lesa inn pöntun á símsvara félagsins í síma 551 4080.
Kortin er hægt að fá með eða án texta. Prentsmiðjan Oddi tekur að sér að prenta frekari texta á kortin ef óskað er.