Heilbrigðisnefnd Alþingis kom í heimsókn á Landspítala þriðjudaginn 13. nóvember 2007 en hún hafði óskað eftir því við framkvæmdastjórn LSH að fá samþjappaða kynningu á starfseminni, bæði eins og hún er núna og á stöðu undirbúnings að byggingu nýja spítalans. Kynningarfundurinn var haldinn á Eiríksstöðum og stóð yfir í rúmar tvær klukkustundir.
Heilbrigðisnefnd Alþingis á kynningarfundi
Þingmenn í heilbrigðisnefnd Alþingis kynntu sér málefni Landspítala á fundi 13. nóvember 2007.