Félagar í Kiwanisklúbbnum Elliða hafa fært fæðingardeild LSH sjónvarp að gjöf. Sjónvarpið verður staðsett í séraðstöðu starfsfólks inni á deildinni en þar dvelur starfsfólk einkum í matar- og kaffitímum.
Guðrún Eggertsdóttir og Margrét I. Hallgrímsson tóku við gjöfinni og færðu gefendum þakkir en fulltrúar þeirra voru Grétar Hannesson og Páll V. Sigurðsson.