Íslensk börn hafa á undanförnum áratugum þyngst mikið og hefur það þróast líkt og í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu. Samfara þessu hefur börnum með umtalsverða offitu fjölgað mikið. Meðferðarúrræði fyrir of feit börn hafa hins vegar verið fá og sundurleit. Brýn þörf er því á þeim.
Síðastliðin þrjú ár hefur staðið yfir þróun og rannsóknir á meðferð fyrir of feit börn og fjölskyldur þeirra á Barnaspítala Hringsins. Yfir 100 fjölskyldur hafa með góðum árangri farið í gegnum námskeið sem gengið hafa undir nafninu Heilsuskólinn. Meðferðarefni Heilsuskólans hefur verið sótt til Bandaríkjanna sem rannsóknir hafa sýnt góðan árangur af í um 30 ár. Reynslan af notkun þess hér á landi hefur þó leitt í ljós að margt þarf að bæta og laga að evrópskum og þá sér í lagi íslenskum aðstæðum. Miklar vonir eru þess vegna bundnar við að þetta nýja meðferðarefni, sem verður nú til fyrir tilstilli Thorvaldsensfélagsins, muni geta hjálpað fjölmörgum fjölskyldum á Íslandi í framtíðinni.