Við opnun göngudeildarhúss BUGL færðu eigendur Arkís barna- og unglingageðdeild peningagjöf að upphæð kr. 500.000.-.
Í tilefni 10 ára afmælis arkitektastofunnar Arkís, sem teiknaði nýja göngudeildarhúsið, gaf stofan út bók með völdum verkum síðastliðinna 10 ára, ásamt viðtölum og hugleiðingum um arkitektúr. Eigendur Arkís ákváðu að allur ágóði sölu bókarinnar rynni óskiptur til BUGL.