Hringurinn, sem vinnur til styrktar Barnaspítalanum og veikum börnum á Íslandi, hefur nú hafið árlega jólakortasölu sína. Allur ágóði af sölunni rennur í Barnaspítalasjóðinn.
Myndin á jólakortinu 2008 er eftir Ragnheiði Jónsdóttur, dótturdóttur Ragnheiðar Viggósdóttur fyrrverandi formanns Hringsins, og ber heitið „Eftirvænting”.
Á Landspítala eru kortin til sölu á veitingastofu Hringsins og í afgreiðslu Barnaspítalans. Kortin fást líka í Hagkaupum og nokkrum lyfjabúðum. Þau er seld í 10 stk. pökkum með hvítum umslögum á kr. 1000 pakkinn (5 rauð kort og 5 blá).