Landspítali Hringbraut hefur verið lýstur upp í rauðum lit. Það tengist átaki sem verkefnahópurinn GoRed á Íslandi stendur fyrir næstu vikurnar.
GoRed fyrir konur á Íslandi er alþjóðlegt forvarnarverkefni vegna hjarta- og æðasjúkdóma á vegum World Heart Federation. Stjórn átaksins og framkvæmd er í samvinnu við Hjartavernd. Átakið hefst sunnudaginn 22. febrúar á konudaginn en þá verður kynningarfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Í vikunni á undan verður fjallað um átakið í fjölmiðlum og líkamsræktarstöðvar verða með sér átak o.s.frv.
Hjarta-og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum.
Sjá nánar um GoRed átakið fyrir konur á Íslandi (pdf)
GoRed fyrir konur á Íslandi: Fræðsla fyrir konur og heilbrigðisfagfólk (pdf)