Ráðið hefur verið í 6 nýjar stöður framkvæmdastjóra klínískra sviða á Landspítala. Nýtt klínískt sviðakerfi tekur gildi á spítalanum 1. maí en þá fækkar klínísku sviðunum úr 12 í 6. Klínískum sviðum hafa til þessa að jafnaði stýrt tveir sviðsstjórar, sviðsstjóri hjúkrunar og sviðsstjóri lækninga. Það stjórnunarlag er nú lagt niður og ráðinn einn framkvæmdastjóri á hvert hinna nýju sviða, að undangenginni auglýsingu og ráðningarferli.
Framkvæmdastjórar klínískra sviða
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
framkvæmdastjóri bráðasviðs
Jón Hilmar Friðriksson
framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs
Ásbjörn Jónsson
framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs
Páll Matthíasson
framkvæmdastjóri geðsviðs
Vilhelmína Haraldsdóttir
framkvæmdastjóri lyflækningasviðs
Lilja Stefánsdóttir
framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs