Aukin almannatengsl og meira gegnsæi í stjórnun Landspítala eru meðal sex helstu markmiða forstjóra Landspítala á árinu 2009 og í samræmi við það hefur Einar Karl Haraldsson verið ráðinn á skrifstofu forstjóra til sex mánaða frá og með 1. september næstkomandi til þess að móta og festa í sessi nýtt vinnulag á sviði almannatengsla í samvinnu við forstjóra, framkvæmdastjórn, deildarstjóra kynningarmála og aðra stjórnendur og starfsmenn spítalans. Meðal annars verður lögð aukin áhersla á tengsl við hagsmunasamtök sjúklinga og aðstandenda, aukin samskipti við stéttarfélög, opnari stjórnsýslu, skýrari leikreglur og á greinargóða upplýsingamiðlun, þar á meðal með nýjum upplýsingavef.
Einar Karl hefur að undanförnu verið aðstoðarmaður iðnaðarráðherra en á að baki langan feril sem ritstjóri fjölmiðla og ráðgjafi í almannatengslum fyrir félaga- og stjórnmálasamtök, opinbera aðila og fyrirtæki. Hann mun í sumar undirbúa starfið framundan sem verktaki.