Við athöfn í hátíðarsal Háskóla Íslands miðvikudaginn 20. maí 2009 var 33 starfsmönnum Landspítala veitt akademísk nafnbót, samkvæmt samstarfssamningi HÍ og LSH. Allir háskólamenntaðir starfsmenn LSH sem gegna klínískum eða paraklínískum störfum geta sótt um viðurkenningu og nafnbót. Akademísk nafnbót er veitt á grundvelli mats og sá sem uppfyllir lágmarksskilyrði fær nafnbótina klínískur lektor en sá sem uppfyllir frekari skilyrði á kost á nafnbótinni klínískur dósent. Sá sem stenst ítrustu kröfur sem gerðar eru innan háskólasamfélagsins og uppfyllir aukin menntunarskilyrði á möguleika á nafnbótinni klínískur prófessor.
Um akademískar nafnbætur fyrir starfsmenn LSH
Starfsmenn Landspítala sem fengu akademíska nafnbót hjá Háskóla Íslands vorið 2009:
Björn Zoëga læknir, klínískur prófessor
Dóróthea Bergs hjúkrunarfræðingur, klínískur lektor
Elín Laxdal læknir, klínískur dósent
Eyþór Hreinn Björnsson læknir, klínískur prófessor
Felix Valsson læknir, klínískur dósent
Guðborg Auður Guðjónsdóttir lyfjafræðingur, klínískur lektor
Guðmundur Daníelsson læknir, klínískur dósent
Guðmundur J. Arason líffræðingur, klínískur dósent
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur, klínískur lektor
Gunnar Guðmundsson læknir, klínískur prófessor
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir læknir, klínískur dósent
Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir, klínískur prófessor
Jóna Freysdóttir ónæmisfræðingur, klínískur prófessor
Karl Logason læknir, klínískur lektor
Kristín Inga Hannesdóttir sálfræðingur, klínískur dósent
Kristján S. Ásgeirsson læknir, klínískur dósent
Margrét I. Hallgrímsson hjúkrunarfræðingur, klínískur lektor
Margrét Steinarsdóttir líffræðingur, klínískur lektor
Nanna Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur, klínískur lektor
Ólafur E. Sigurjónsson líffræðingur, klínískur lektor
Óskar Þór Jóhannsson læknir, klínískur prófessor
Pétur H. Hannesson læknir, klínískur dósent
Ragnar Grímur Bjarnason læknir, klínískur prófessor
Ragnar Pétur Ólafsson sálfræðingur, klínískur lektor
Rósa Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, klínískur lektor
Sigríður Magnúsdóttir talmeinafræðingur, klínískur dósent
Sigurður Kristjánsson læknir, klínískur dósent
Sigurður Ólafsson læknir, klínískur dósent
Sunna Guðlaugsdóttir læknir, klínískur lektor
Torfi Fjalar Jónasson læknir, klínískur lektor
Uggi Agnarsson læknir, klínískur dósent
Viðar Örn Eðvarðsson læknir, klínískur lektor
Þorbjörg S Ingadóttir hjúkrunarfræðingur, klínískur lektor