Á aðalfundi læknaráðs Landspítala 2009 sem haldinn var 8. maí í Hringsal var Aðalbjörn Þorsteinsson svæfingarlæknir kjörinn ritari læknaráðs til næstu tveggja ára. Þorbjörn Jónsson var jafnframt endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára. Fundurinn samþykkti tvær ályktunartillögur, aðra um nýbyggingu fyrir LSH en hina um valdsvið og ábyrgð yfirmanna.
Ályktanir aðalfundar læknaráðs 8. maí 2009