Helga Jörgensdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á deild 33C á geðsviði frá og með 1. nóvember 2009.
Helga lauk hjúkrunarprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1984, viðbótarnámi í geðhjúkrun frá HÍ árið 1993, BSc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2004 og stundar nú meistaranám í mannauðsstjórnun. Hún hefur starfað nær óslitið við hjúkrun frá útskrift, lengst af við geðhjúkrun barna og unglinga á BUGL en síðustu árin mest við hjúkrun barna og unglinga með átröskun. Hún hefur margra ára reynslu af stjórnunarstörfum, m.a. sem aðstoðardeildarstjóri á barna- og unglingageðdeild, deildarstjóri endurhæfingarheimilis geðsviðs á Reynimel og stoðhjúkrunarfræðingur við fíknigeðdeild á Vífilsstöðum.
Helga hefur sinnt rannsóknum í samvinnu við aðra, þar sem viðfangsefni voru foreldrar, unglingar og geðræn vandamál, og birt niðurstöður þeirra m.a. í tímaritum, á vísindaráðstefnum og á vísindakynningum með veggspjöldum. Hún hefur unnið umtalsverða þróunarvinnu á sínu sviði, m.a kennsluefni fyrir sjúklinga með lystarstol og lotugræðgi og um varnaðaraðgerðir gegn ofbeldi á sjúkrastofnunum. Helga þróaði meðferðarhóp fyrir lystarstolsungmenni ásamt Ósk Sigurðardóttur iðjuþjálfa. Hún hefur flutt erindi og haldið námskeið fyrir faghópa sem einkum tengjast ungmennum með átröskun.
Helga var starfandi deildarstjóri á deild 15 - sérhæfðri deild í afleysingum frá 2006 og var síðan ráðin deildarstjóri sömu deildar frá 2007