Heilbrigðisráðherra og fulltrúar 20 lífeyrissjóða undirrita viljayfirlýsingu vegna nýs Landspítala kl. 13:15 í dag, miðvikudaginn 4. nóvember 2009, í K-byggingu Landspítala.
Viðstaddir verða líka forsætisráðherra og fjármálaráðherra, forystumenn lífeyrissjóða, stjórnendur og starfsmenn Landspítala og fleiri.
Í tilefni af undirrituninni býður framkvæmdastjórn spítalans upp á konfekt í hádeginu í öllum matsölum LSH. Einnig verður heitt kakó með rjóma og kaka dagsins í boði í matsölunum. Boðið verður upp á köku í hádeginu í þeim matsölum sem ekki hafa opið í síðdegiskaffinu. |