Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Avant hefur fært Barnaspítala Hringsins 750 þúsund króna styrk. Fjárhæðinni er ætlað að renna til endurmenntunar starfsfólksins. Með því vill fyrirtækið stuðla að því að landsmenn geti áfram notið framúrskarandi þjónustu starfsfólks spítalans og þakka um leið það fórnfúsa starf sem þar er unnið.
Þetta er í þriðja sinn sem Avant færir Barnaspítalanum styrk af þessu tagi.
Jón Hilmar Friðriksson framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Landspítala tók við styrknum 12. desember 2009. Á myndinni heldur Magnús Gunnarsson á hluta nokkurra nýrra barnabóka sem hann færði leikstofu Barnaspítala Hringsins að auki.