Göngudeild bráðadeildar Landspítala hefur tekið til starfa á 2. hæð á Landspítala Fossvogi. Þetta er liður í sameiningu á tveimur stærstu bráðamóttökum spítalans í lok mars 2010 í eina bráðadeild í Fossvogi. Sú bráðadeild verður á tveimur hæðum, í núverandi húsnæði slysa- og bráðadeildar og á næstu hæð fyrir ofan.
Bráðavakt á neðri hæðinni annast bráðveika einstaklinga og gönguvakt þá sem eru minna veikir og slasaðir.
Gönguvakt verður á hæðinni fyrir ofan núverandi slysa- og bráðadeild og hófst starfsemin þar miðvikudaginn 20. janúar 2010. Hún verður opin virka daga frá kl. 08:00 til 23:00 og um helgar og á hátíðisdögum kl. 12:00 til 20:00.
Við komu á bráðadeildina verða einstaklingar flokkaðir samkvæmt bráðaflokkunarkerfi í 5 flokka, þar sem flokkur 1 er mjög bráður vandi og flokkur 5 minni háttar vandi. Því lægri flokkun sem einstaklingur fær þeim mun bráðari telst vandinn og viðkomandi fer framar í forgangsröð en sá sem flokkast hærra.
Unnið verður að breytingum á húsnæði nýrrar bráðadeildar til marsloka. Starfsfólkið biður fólk sem þarf á þjónustu deildarinnar að halda að taka tillit til þessa og minnir um leið á að hægt er að leita með ýmis bráðavandamál til heilsugæslustöðva, s.s. sár, tognun á ökkla og fleira þess eðlis.