Landspítali á nokkra fulltrúa í Vasagöngunni í Svíþjóð 2010. Í 90 kílómetra göngu sem fer fram mánudaginn 1. mars 2010 eru Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari á Landakoti og Vilborg Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari á Grensási. Linda Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur á slysa- og bráðadeild og starfsmannahjúkrunarfræðingur tekur síðan þátt í aðalgöngunni 7. mars.
Vilborg styður söfnunina Á rás fyrir Grensás með þátttöku sinni.
Sjá nánar hér.
Hægt er að fylgjast með stöðu Vilborgar í göngunni 1. mars hér.
Hægt er að fylgjast með stöðu Bergþóru í göngunni 1. mars hér.