Í tilefni af formlegri opnun Hjartagáttar Landspítala 15. apríl 2010 var sviðsett hjartaáfall í samstarfi við Neyðarlínuna. Fylgst er með manni sem "fær hjartaáfall" í heimahúsi í Reykjavík og kallar á sjúkrabíl. Sjúkraflutningamennirnir koma á vettvang og sinna skyldum sínum á staðnum áður en þeir flytja manninn á Hjartagátt LSH. Þegar þangað er kominn er maðurinn skoðaður og síðan sendur í hjartaþræðingu. Í ferlinu er reynt að gera allt sem raunverulegast.
Ísland í dag á Stöð 2 fylgdist með og sýnir "hjartaáfallið" í kvöld, mánudaginn 19. apríl, klukkan 18:54.
Tengt efni:
Hjartagátt Landspítala opnuð við Hringbraut
Ísland í dag á Stöð 2 fylgdist með og sýnir "hjartaáfallið" í kvöld, mánudaginn 19. apríl, klukkan 18:54.
Tengt efni:
Hjartagátt Landspítala opnuð við Hringbraut