Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) og Landspítali hafa gert með sér verklagsreglur vegna samvinnu stofnananna við fæðingarþjónustu.
Ljósmæður á HSS munu sinna eðlilegum fæðingum og mæðravernd. Fæðingarlæknir er starfandi á HSS á dagvinnutíma þrjár vikur í mánuði. Ljósmæður sinna mæðravernd ásamt heimilislæknum í fjarveru fæðingarlæknis.
Í samkomulaginu er nánar tilgreint hvernig samskiptum milli stofnananna verður háttað til að tryggja sem best öryggi móður og barns. Keflavík er nú skilgreind sem fæðingarstaður D1, þ.e. ljósmóðir og heilsugæslulæknir starfa þar en landlæknir hefur áður gefið út leiðbeiningar um val á fæðingarstað þar sem fæðingarstaðir eru flokkaðir eftir því hvaða þjónustustig er í boði á hverjum stað.