Sex umsóknir bárust um stöðu forstjóra Landspítala en umsóknarfrestur rann út 30. júlí. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. október 2010 eftir að lögbundið mat hæfnisnefndar hefur borist honum.
Þeir sem sóttu um starfið:
Birgir Jónsson MBA
Björn Zoëga bæklunarskurðlæknir, starfandi forstjóri LSH
Guðmundur Björnsson orku- og endurhæfingarlæknir
Jan Triebel orku- og endurhæfingarlæknir, yfirlæknir Heilsustofnunar NLFÍ
Stefán E. Matthíasson æðaskurðlæknir
Þorsteinn Örn Guðmundsson verkfræðingur, ráðgjafi