Styrktarfélagið Líf hefur gefið út uppskriftarbókina LÍFSFYLLING sem er full af girnilegum uppskriftum á samtals 168 síðum. Í bókinni eru forréttir, súpur, fiskréttir, kjötréttir, grænmetisréttir, salöt, ábætar, matarbrauð, kökur, tertur, heitir og kaldir smáréttir og sultur.
Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til Styrktarfélagsins Lífs sem var stofnað árið 2009 og hefur að markmiði að styðja alla starfsemi kvennadeilda Landspítala.
Bókin kostar 2.500 krónur eintakið. Hægt er að kaupa hana hjá Hönnu S. Antoníusdóttur sölustjóra; netfang: hanna@centrum.is eða í s. 568 5919 / 863 3221. Áhugasamir sem vilja selja 10 eða fleiri eintök af bókinni geta sett sig í samband við Hönnu.