Aspirnar sem staðið hafa teinréttar bakvið Kringluna (aðalinnganginn) á Landspítala Hringbraut voru fjarlægðar 26. október 2010. Ástæðan var sú að rætur trjánna voru komnar í lagnir og því ekki um annað að gera. Það þurfti stórvirkar vinnuvélar til þess að koma trjánum í burtu þannig að sem öruggast væri.