Margt af besta tónlistarfólki landsins kemur fram á stórtónleikum sem Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 11. nóvember 2010. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og eru haldnir til styrktar barna- og unglingageðdeild LSH (BUGL) og líknarsjóði Fjörgynjar.
Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Fjallabræður, Voces Masculorum, Söngleikurinn Buddy Holly (Ingólfur Þórarinsson, Sigurjón Brink og Felix Bergsson), Egill Ólafsson, Gréta Salóme, Hörður Torfason, Ómar Ragnarsson, Páll Rósinkranz, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Gréta Hergils, Guðrún Gunnarsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Óskar Pétursson, Ragnar Bjarnason, Snorri Wium. Undirleikarar eru Jónas Þórir og Þorgeir Ástvaldsson. Kynnir kvöldsins er Felix Bergsson.
Verð aðgöngumiða er kr. 2.500. Miðasala er til 10. nóvember hjá N1, Ártúnshöfða, Bíldshöfða og Gagnvegi. Einnig hjá Olís, Álfheimum, Gullinbrú og Norðlingaholti. Tónleikadaginn verða miðar seldir í Grafarvogskirkju milli kl. 16:00 og 20:00.
Þetta er áttunda árið í röð sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir tónleikum sem þessum og aðsóknin hefur alltaf verið mikil. Lionsklúbburinn Fjörgyn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á tónleikana núna og hlýða á marga af bestu tónlistarmönnum landsins í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, um leið og stutt er við gott málefni.