Líknarsjóður Ögnu og Halldórs Jónssonar hefur gefið 2 milljónir króna til verkefnisins Foreldrar - meðganga - barn sem er á vegum geðsviðs og kvenna- og barnasviðs á Landspítala.
Þessi fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram 8. desember 2010 en þá voru félögum og verkefnum tengdum börnum veittir styrkir að upphæð 30 milljónir króna. Þessi tiltekni styrkur var veittur til að styrkja þjónustu og aðbúnað á geðsviði til að sinna foreldrum á meðgöngu og fyrsta árið eftir fæðingu barns.
Halldór Jónsson fæddist 16. janúar 1916 á Kirkjubæ í Hróarstungu og lést 23. febrúar 1977. Agna Guðrún fæddist í Danmörku 29. nóvember 1915 og lést 24. ágúst 2009. Agna og Halldór stofnuðu fyrirtækið Halldór Jónsson ehf þann 1. febrúar 1955. Agna stofnaði Líknarsjóð Ögnu og Halldórs Jónssonar árið 1982 og átti hann að taka til starfa að henni látinni. Hún ánafnaði sjóðnum allar eigur þeirra hjóna og er hlutverk hans að styrkja hvers konar líknarmál á Íslandi. Stjórn sjóðsins skipa Helgi Jóhannesson, Ingibjörg Magnúsdóttir og Kristján S. Sigmundsson.