Leikmenn Íslandsmeistaraliðs Breiðabliks í knattspyrnu verða með einkennismerki kvenfélagsins Hringsins á búningum sínum sumarið 2011. Af því tilefni litu þeir í heimsókn á Barnaspítala Hringsins skömmu fyrir jól.
Ástæðan fyrir þessu er breyttur stuðningur Landsbankans við íslensk íþróttafélög undir yfirskriftinni „samfélag í nýjan búning“. Íþróttafélög geta valið gott málefni til að setja á búninga sína og Landsbankinn styður síðan bæði félagið og málefnið eftir vissum leikreglum. Breiðablik valdi að styðja Hringinn.