Listakonan Hildur Yeoman hefur fært Lífi, styrktarfélagi kvennadeilda Landspítala, mynd að gjöf. Hildur fæddi þar dreng fyrir tveimur árum en þau voru alls 10 daga á spítalanum. Hún er þakklát fyrir góða umönnun og vildi leggja sitt af mörkum til að gera umhverfið fallegra á kvennadeildahúsinu.
Sjá nánar á vef Styrktarfélagsins Lífs