Landspítali var rekinn með 52 milljóna króna tekjuafgangi á árinu 2010. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri spítalans.
Heildarvelta Landspítala í fyrra var 40,1 milljarður króna og þar af nam rekstrarframlag ríkissjóðs 33,1 milljarði. Ekki var um að ræða viðbótarfjárframlag til spítalans í fjáraukalögum fyrir árið 2010.
Tekjuafgangur upp á 52 milljónir er ríflega 0,1% af heildarveltu. Stærsti einstaki útgjaldaliður ársins var launagjöld upp á 25,5 milljarða sem er 1,2 milljörðum minna en árið 2009.
- Starfsmönnum fækkaði um 200 árið 2010. Þeim hefur fækkað um samtals 670 frá ársbyrjun 2009.
- Lyfjakostnaður lækkaði um 12% árið 2010 eða 170 milljónir króna.
- Rannsóknum (myndgreining, blóðrannsóknir og ræktanir) fækkaði um 17% frá árinu 2009.
- Fæðingum fækkaði um 2% og voru 3.420, samanborið við 3.500 árið 2009.
- Sjúklingar sem leituðu á bráðamóttökur spítalans voru 91.482 sem er 3% fækkun frá fyrra ári.
- Meðallegutími sjúklings styttist úr 6,9 dögum í 6,7 daga.