Opnuð hefur verið "Føroysk heimasíða" á upplýsingavef Landspítala. Þar eru ýmsar upplýsingar á færeysku um Landspítala og Ísland ásamt sjúklingafræðslu.
Færeyski vefurinn tengist samningi Landspítala um þjónustu við sjúklinga frá Færeyjum sem undirritaður var 19. ágúst 2010. Samkvæmt honum er sjúklingum sem Færeyingar þurfa að senda til annarra landa vísað til Landspítala til jafns við önnur norræn háskólasjúkrahús.
Vegna samningsins eiga fulltrúar Landspítala kynningarfundi í Þórshöfn í Færeyjum dagana 10. og 11. mars 2011 um Landspítala og samstarfið við Færeyinga.