Tveir starfsmanna Landspítala eru tilnefndir til stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2011. Björn Zoëga forstjóri er tilnefndur í flokknum fjármálastjórnun og Ína Björg Hjálmarsdóttir, gæðastjóri Blóðbankans, í flokknum gæðamál. Þriðji flokkurinn er markaðsstjórnun og eru 50 tilnefningar til verðlaunanna samtals í flokkunum þremur. Þrír stjórnendur hljóta verðlaun úr hverjum þeirra. Forseti Íslands afhendir verðlaunin 17. mars. Vefur Stjórnvísi, félags um framsækna stjórnun
|
|
Leit
Loka