Um er að ræða nánast öll bankaviðskipti og tengda þjónustu svo sem innlánsviðskipti á tékkareikningum og skammtímabankareikningum, útlánsviðskipti, aðgang að fyrirtækjabanka ásamt bankaþjónustu vegna ýmissa sérsjóða sem fjármálasvið Landspítala heldur utan um. Ennfremur nær samningurinn til þjónustu, gjaldskrár og greiðsluskila vegna innheimtukrafna Landspítala. Íslandsbanki mun einnig veita spítalanum reglulega upplýsingar er varða hagspár, vaxtaþróun, gengisþróun erlendra gjaldmiðla og ávöxtunarmöguleika.
Samningurinn var undirritaður af Birni Zoëga forstjóra Landspítala og Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka í K-byggingu Landspítala miðvikudaginn 23. mars 2011.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala: „Þetta er tímamótasamningur fyrir Landspítalann sem mun skila um 8 milljóna króna hagræðingu á þessu ári og enn meiri á næsta ári. Samningurinn er þannig liður í því að reyna að hagræða alls staðar í starfsemi spítalans á erfiðum tímum.”
Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka: „Við hjá Íslandsbanka hlökkum til samstarfsins við Landspítalann. Landspítalinn er stærsti vinnustaður landsins og hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum síðustu misseri. Þetta útboðsferli sýnir að stjórnendur spítalans takast á við þær áskoranir á afar faglegan hátt.”