Í tengslum við landssöfnun Lífs, styrktarfélags kvennadeilda Landspítala, gaf Icepharma félaginu veglega gjöf sem er fullkominn stafrænn blóðþrýstingsmælir á standi með súrefnismettunarmæli og eyrnahitamæli. Verðmæti tækisins er um 600.000 krónur.
Tækið kemur sér afar vel við umönnun veikra sjúklinga, til dæmis veikar konur með meðgöngueitrun eða önnur alvarleg vandamál og einnig eftir skurðaðgerðir.
Styrktarfélagið Líf og kvennadeild LSH fagna gjöfinni en Hermann, Unnur og Sóley frá Icepharma afhentu tækið 18. apríl 2011. Fyrir hönd Lífs tók Hildur Harðardóttir, yfirlæknir og stjórnarmaður í Líf, við gjöfinni og afhenti áfram til Guðrúnar Eggertsdóttur, yfirljósmóður á fæðingardeild LSH, þar sem tækið verður notað.