Soroptimistaklúbbur Árbæjar gaf fæðingardeild 23A á Landspítala fullkominn stafrænan blóðþrýstingsmæli á standi með súrefnismettunarmæli, að verðmæti um 450.000 krónur. Tækið kemur sér afar vel við umönnun kvenna í fæðingu, t.d. ef þær eru með mænurótardeyfingu, blóðþrýstingsvandamál eða þarfnast sérstakts eftirlits eftir keisaraskurð eða aðrar aðgerðir. Tækið var afhent 2. maí 2011.
Leit
Loka