Actavis hefur gefið krabbameinslækningadeild 11E húsgögn í aðstandendaherbergi á deildinni. Tekið var þessari höfðinglegu gjöf 11. maí 2011 ásamt annarri þann sama dag. Oddfellowreglan sem heitir Rebekkustúka nr. 4, Sigríður, I.O.O.F. færði deildinni 5 rafknúna hægindastóla.
Ljósmyndir:
Efri mynd: Dóra Sigurðardóttir, Halla Skúladóttir yfirlæknir 11E, Steinunn Ingvarsdóttir deildarstjóri 11E, Guðrún Björnsdóttir, Ragnhildur Pétursdóttir, Dagmar Kaldal og Guðrún Hafsteinsdóttir.
Neðri mynd: Kristín Birna Bragadóttir og Linda Rós Björnsdóttir frá Actavis og Sigrún Anna Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og Steinunn Ingvarsdóttir deildarstjóri frá 11E.