Barnaspítala Hringsins hafa verið færðar að gjöf rúmlega 2,2 milljónir króna. Sverrir Axelsson og Geir H. Þorsteinsson afhentu fjárhæðina fyrir hönd barna Guðrúnar Þorsteinsdóttur sem erfðu féð frá systur Guðrúnar, Kristínu Þorsteinsdóttur. Bræðurnir Gunnar og Bjartur Tómassynir, sem voru á leikstofu Barnaspítalans, tóku á móti ávísuninni fyrir hönd barna sem dvelja á spítalanum.
Leit
Loka