Framkvæmdastjóri fjármálasviðs hefur meðal annars það hlutverk að leiða og samhæfa fjármál, reikningsskil, innkaup og vörustjórnun LSH ásamt því að safna, greina og miðla upplýsingum um starfsemi og rekstur spítalans. Einnig sinnir framkvæmdastjórinn viðskiptaþróun spítalans og samvinnu við aðrar stofnanir á heilbrigðissviði.
María Heimisdóttir lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1990. Hún stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum og lauk MBA námi frá University of Connecticut árið 1997 og síðan doktorsnámi í lýðheilsufræðum (PhD), samhliða vinnu við kennslu og rannsóknir, frá University of Massachusetts árið 2002. María starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá 1999 til 2002 þegar hún hóf störf á Landspítala. Hún sinnti sérverkefnum fyrir framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra fjármála árin 2003-2006, einkum á sviði rafrænnar sjúkraskrár og klínískra framleiðslumælinga. Hún var sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs 2006-2009 og síðan yfirlæknir hagdeildar frá 2009 til nóvember 2010. Settur framkvæmdastjóri fjármálasviðs nóvember 2010-júní 2011.
María er klínískur lektor við læknadeild Háskóla Íslands og hefur birt vísindagreinar í innlendum og erlendum fræðiritum, sinnt akademískum leiðbeinanda- og prófdómarastörfum og stundað kennslu á sviði stjórnunar, lýðheilsu og klínískrar upplýsingatækni, m.a. í læknadeild og félagsfræðideild HÍ.